Úrval - 01.06.1942, Page 19

Úrval - 01.06.1942, Page 19
AFBURÐAMENN 17 leiddu eftirfarandi í ljós: Af hverjum 100 börnum, sem vel hefir vegnað, eru 57 afkomend- ur embættismanna, sem höfðu það góð efni, að þeir gátu veitt þeim staðgott og öruggt um- hverfi. En þau börn, sem illa vegnaði, áttu hinsvegar við fá- tækt og öryggisleysi að búa, og lifðu gleðisnauðu lífi. Foreldrar margra þeirra voru útlendingar, sem ekki höfðu fyllilega náð að festa rætur í Vesturálfu. Börn- in fengu ekki notið sín vegna umhverfis þess, sem þau áttu við að búa. Ályktanir þær, sem Dr. Miles dró af fyrnefndum rannsóknum sínum, voru þessar: Afburða- mennirnir voru af góðu bergi brotnir og áttu gáfaða foreldra. Flestir þeirra nutu öryggis, ást- úðar og skilnings í æsku. Af- burðamenn, sagði Dr. Miles enn- fremur, eru yfirleitt góðlátir, trygglyndir, samvizkusamir, ákveðnir, heilbrigðir til sálar og líkama, hógværir og lítt gefnir fyrir skemmtanir. Þeir skara ekki síður fram úr almenningi að þessu leyti en að gáfum. En hvað er það í athugunum Dr. Termanns og Dr. Miles, sem mannfélaginu má að gagni koma? Þær leiða í ljós, að enda þótt afburðagáfur séu fyrst og fremst háðar arfgengi, þá fá þær ekki notið sín nema í réttu umhverfi. Þjóðfélagið verður að kunna að meta afburðagáfur og veita börnunurn öruggt og staðgott umhverfi þegar frá fæðingu. Við höfum not fyrir miklar gáfur og verðum að gera okkur far um að leita þeirra og hlúa að þeim. Það er rangt, að mikhr hæfileikar dafni bezt, þar sem eymd er og volæði, en þeir geta hins vegar stundum komið fram þrátt fyrir það. Ekki skal því þó haldið fram, að fátækt, sé hún ekki um of, og agi, kunni ekki að hafa bless- un í för með sér. Æfi margra mikilmenna bendir ótvírætt til þess. Öryggisleysið er ekki óhjá- kvæmileg fylgja fátæktarinnar. Það, sem hér hefir verið sagt um afburðamennina, gildir einnig hvað almenning snertir. Gáfur og persónuleiki manna njóta sín bezt við hagkvæm skil- yrði. Það er viðurkennt í orði, en ekki ávallt á borði. Vísindin hafa nú sýnt okkur leiðina og bent á, hve nauðsyn- legt það er, að komandi kyn- slóð eigi við öryggi, menntun og þjálfun að búa, ef hver maður á að fá notið sín að fullu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.